ITS-Ísland

ITS-Ísland

Transportation, Logistics, Supply Chain and Storage

Reykjavík, Höfuðborgarsvæðið 49 followers

Intelligent Transport System in Iceland

About us

ntelligent Transportation System (ITS) er bæði safnhugtak fyrir upplýsingatæknihlið samgangna- og flutningsgeira og formlegur félagskapur sérfræðinga í tengdum atvinnugreinum um allan heim. Greinarnar eru samtvinnaðar og hafa oft sömu markmið en grunnstarfsvettvangur þeirra er ólíkur svo tengingar hafa skort þeirra á milli. ITS á Íslandi er hugsaður sem vettvangur fyrir þessa geira hérlendis og tenging yfir í sambærileg félög erlendis. Markmið félagsins er að skapa vettvang til að styðja faglega hagsmuni opinberra og einkarekinna fyrirtækja sem og fræði- og vísindamanna á sviði upplýsingatæknivæddra flutningskerfa (ITS) í samvinnu við opinbera aðila. Stofnfundur ITS á Íslandi fer fram í september 2019. Til stofnfundar verður boðið þeim aðilum sem eiga erindi í félagið, stofnunum, opinberum og einkareknum fyrirtækjum sem og einstaklingum og menntastofnunum. Á stofnfundi verða lagðar línurnar fyrir fyrstu ár félagsins sem og önnur hefðbundin aðalfundarstörf. Kosin verður stjórn úr hópi stofnmeðlima, sem sjálf skiptir með sér verkum. Leitast verður við að fá sem flesta að borðinu við stofnun til að gera samtökin strax að öflugum talsmanni innan geirans.

Website
http://its-island.is
Industry
Transportation, Logistics, Supply Chain and Storage
Company size
1 employee
Headquarters
Reykjavík, Höfuðborgarsvæðið
Type
Nonprofit
Founded
2019

Locations

Updates

Similar pages